LazyTown

Um okkur í Latabæ

Það er allt á hvolfi í Latabæ. Solla stirða sem er bjartsýn stelpa með bleikt hár, flytur í Latabæ og hittir sérkennilegt samansafn bæjarbúa. Einn af þeim er Glanni glæpur, latasti glæpamaður í heimi.

Til allrar hamingju vaktar ofurhetjan Íþróttaálfurinn Latabæ. Íþróttaálfurinn er í mjög góðu formi, hann er fimur, frískur og fljótur á staðinn þegar þú þarfnast hans. Kristallinn hans tilkynnir honum þegar hjálpar er þörf og þá hleypur hann, stekkur eða flýgur til hjálpar á loftskipinu sínu.  Íþróttaálfurinn nær alltaf að bjarga deginum og hjálpa krökkunum í Latabæ að koma í veg fyrir að ráðabrugg Glanna glæps takist.

Krakkarnir í Latabæ eru forvitnir, fjörugir og ævintýragjarnir. Rétt eins og Solla stirða eru þau að uppgötva lífið og tilveruna.  Öll hafa þau sín sérkenni og ættu flestir krakkar að geta samsamað sig þeim.

Til dæmis er Siggi sæti, sem er yngstur af krökkunum, mjög hjálpsamur og góður en hann borðar alltof mikið af sælgæti, hann getur bara ekki staðist það. Nenni níski er ágætur inn við beinið þó að hann sé oft og tíðum eigingjarn og vilji helst ekki deila með öðrum.  Goggi mega er snillingur í tækjum og tólum en hann eyðir aðeins of miklum tíma í tölvunni. Halla hrekkjusvín er snjöll stelpa sem á auðvelt með að ráða þrautir en á ekki jafn auðvelt með að sýna þolinmæði og fara eftir settum reglum. Svo er það Solla stirða, sem reynir að falla inn í hópinn með því að vera jákvæð og líta á björtu hliðarnar en hún er stundum í vafa um hvort hún eigi að velja auðveldu leiðina eða þá réttu. 

Alveg frá upphafi hefur markmið Latabæjar verið það sama: Að hvetja börn til heilbrigðari lífsstíls. Við lærum mest þegar við skemmtum okkur og það hefur Latibær að leiðarljósi í öllu sínu starfi.

Latibær er nú þegar orðið heimsþekkt vörumerki í gegnum mismunandi dreifileiðir eins og sjónvarpþætti, viðburði og ýmsar neytendavörur. Á þennan hátt hefur Latibær náð að fanga athygli barna og stuðla að bættri heilsu þeirra.

Latibær nær til barna á öllum aldri. Það sem börn læra af Latabæ býr með þeim vel og lengi sem sýnir sig í bættum lífsvenjum þeirra.  Latibær nær einnig með þessu móti að létta aðeins undir foreldrum og öðrum uppalendum barna þar sem þeir geta nýtt sér Latabæ þegar kemur að því að ala upp einstaklinga sem huga að heilsunni. Á þennan hátt hittir Latibær beint í mark þar sem sameiginlegt markmið okkar,  sem og uppalenda um heim allan, er að ala upp heilbrigð og lífsglöð börn.

Öll viljum við láta okkur líða vel og eiga hamingjuríkt líf. Og öll þráum við það sama fyrir börnin okkar. Það fyrirfinnast mörg heilræði um hvernig við getum áorkað þessu en allir eru sammála um að heilbrigður líkami, fjölbreytt mataræði og regluleg hreyfing séu mjög góður grunnur.